Lög Fagfrí – landssamtök um fagþróun frístundaheimila á Íslandi
1.gr.
Heiti samtakanna er Fagfrí – landssamtök um fagþróun frístundaheimila á Íslandi, og samtökin eru landssamtök frístundaheimila á Íslandi. Samtökin eru frjáls félagasamtök frístundaheimila á Íslandi. Varnarþing samtakanna er í Reykjavík.
Á ensku heita samtökin Fagfrí – the national association of professional development of afterschool programs in Iceland
2.gr.
Samtökin eru landssamtök. Aðalmarkmið þeirra er að stuðla að faglegu frístundastarfi um allt land sem styður við virka þátttöku barna, lýðræðisleg vinnubrögð, áherslu á félagsfærni og frjálsan leik 6 -9 ára barna á Íslandi sbr. 1. grein æskulýðslaga nr. 70/2007 og 33. gr. grunnskólalaga nr. 91/2008.
Það er gert með því að:
- Styðja við faglegt frístundastarf á frístundaheimilum landsins
- Miðla og efla þekkingu starfsfólks á vettvangi frítímans með fræðsluefni, ráðstefnum eða námskeiðum
- Vera leiðandi í umræðu um hugmyndafræði og löggjöf er varða æskulýðsmál á Íslandi.
- Koma á framfæri upplýsingum um starf frístundaheimila og undirstrika vægi þeirra í nútíma samfélagi.
- Auka samskipti og samvinnu frístundaheimila og efna til verkefna á innlendum og erlendum vettvangi.
3.gr
Aðilar að Hagsmunasamtökum frístundaheimila geta frístundaheimili orðið sem bjóða upp á skipulagt frístundastarf fyrir 6-9 ára börn og:
- Vinna eftir leiðarljósum frístundaheimila; Börnin á frístundaheimilinu, Starfshættir og viðfangsefni, Mannauður og faglegt starf og Bjargir og skipulag.
Aðild að samtökunum fellur sjálfkrafa úr gildi;
- Hafi frístundaheimili ekki greitt aðildargjald ári eftir eindaga reiknings.
- Frístundaheimili í vanskilum við samtökin er óheimil þátttaka í starfsemi þeirra.
- gr
Starfsfólk þeirra frístundaheimila sem skráð eru í samtökin hafa rétt til setu á aðalfundi samtakanna, hafi frístundaheimilið greitt árgjald og séu skuldlaus við samtökin á síðasta reikningsári. Starfsfólk hvers frístundaheimilis hafa saman eitt atkvæði er til atkvæðagreiðslu kemur og geta ekki kosið í umboði annars aðildarfélags.
Einnig hafa einstaklingar sem vinna að málum frístundaheimila á öðrum vettvangi rétt til setu á aðalfundi samtakanna til jafns við aðra meðlimi.
Þá geta fulltrúar skrifstofa æskulýðs- og tómstundamála verið áheyrnarfulltrúar á aðalfundi og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
- gr
Lögum þessum skal aðeins breytt á aðalfundi samtakanna. Tillögur um breytingar á lögum samtakanna þurfa að berast stjórn a.m.k. 30 dögum fyrir aðalfund. Stjórn samtakanna skal kynna tillögur að lagabreytingum til aðila að samtökunum að minnsta kosti viku fyrir aðalfund. Við lagabreytingar þarf að minnsta kosti 3/5 greiddra atkvæða fundarmanna til þess að breyting sé löglega samþykkt. Lög þessi öðlast þegar gildi.
- gr
Aðalfundur félagsins hefur æðsta vald í málefnum Hagsmunasamtakanna. Aðalfund skal halda fyrir lok apríl ár hvert. Aukafundi svo oft sem þurfa þykir. Til aðalfundar skal boða með í það minnsta 15 daga fyrirvara og dagskrá kynnt. Reikningsár samtakanna er almanaksárið. Árgjald skal ákveða á hverjum aðalfundi og skal eindagi þess vera 15. september ár hvert.
- Dagskrá aðalfundar
- Skýrsla stjórnar og nefnda.
- Ársreikningar samtakanna lagðir fram til samþykktar.
- Upplýsingar um inntöku nýrra félaga.
- Lagabreytingar
- Kosningar skv. 7. og 8. grein laga samtakanna.
- Önnur mál.
Fundinum skal stjórnað eftir almennum fundarsköpum. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála.
- gr
Stjórn Hagsmunasamtaka frístundaheimila skal kosin á aðalfundi. Kjósa skal:
- Formann
- Gjaldkera
- 3 meðstjórnendur. Hlutverk þeirra eru varaformaður, ritari og meðstjórnandi.
- 2 Varamenn
- 2 skoðunarmenn reikninga samtakanna
- 1 skoðunarmann reikninga til vara
Kjörgengir til stjórnar Hagsmunasamtakanna eru þeir aðilar sem hafa seturétt á aðalfundi skv. 4. grein laga samtakanna.
Stjórnarmaður má lengst sitja í fimm ár samfellt. Honum er þá heimilt að bjóða sig fram til varastjórnar. Öðlast hann að nýju rétt til framboðs í aðalstjórn eftir eitt ár í varastjórn eða utan stjórnar. Ef sitjandi stjórnarmaður er kosinn formaður er heimilt að framlengja stjórnarsetu hans úr fimm í sjö ár.
Hverjum aðila að samtökunum er aðeins heimilt að eiga einn fulltrúa í aðalstjórn eða einn fulltrúa í varastjórn. Meðstjórnendur eru kosnir til tveggja ára og fylgja kjörtímabili formanns.
Formaður og gjaldkeri eru kosnir til tveggja ára í senn og geta að hámarki setið tvö kjörtímabil. Kjörtímabil formanns og gjaldkera skulu skarast. Sé kosið um formann og gjaldkera á sama tíma, skal kjósa til eins árs í það embætti er við á að hverju sinni. Á fyrsta fundi eru gjaldkeri eða formaður kosinn til eins árs.
Stjórnin framkvæmir stefnu samtakanna, stýrir málefnum þeirra á milli aðalfunda og gætir hagsmuna samtakanna í hvívetna.
Stjórn Hagsmunasamtakanna skal funda að minnsta kosti sex sinnum á ári.
- gr
Stjórn skal taka saman ársskýrslu um starfsemi og verkefni samtakanna fyrir aðalfund og skal hún liggja frammi fyrir aðildarfélaga. Nefndir og starfshópar sem unnið hafa beint með eða fyrir samtökin skulu skila skýrslu/greinargerð um viðkomandi starfsemi eigi síðar en 15 dögum fyrir aðalfund. Fundargerð aðalfundar skal send út til meðlima ekki síðar en mánuði eftir aðalfund.
- gr
Frístundaheimilum er heimilt að stofna landshlutafélag. Frístundaheimilum er raðað í landshluta eftir því hvar þau eru staðsett. Landshlutafélög skulu stuðla að samskiptum og samvinnu milli frístundaheimila í landshlutanum og hafa með sér samstarf um fræðslu, verkefni og viðburði fyrir starfsfólk og stjórnendur.
Landshlutafélög setja sér sjálf reglur um stjórnskipulag að því tilskyldu að þær stríði ekki gegn lögum og samþykktum Hagsmunasamtaka frístundaheimila. Stjórn Hagsmunasamtakanna er landshlutafélögum til aðstoðar við verkefni sín og skal landshlutafélag senda skrifstofu Hagsmunasamtakanna fundargerðir sínar til varðveislu.
- gr
Félagsslit skulu rædd á aðalfundi eða aukaaðalfundi og þarf atkvæði ⅔ aðildarfélaga til að samþykkja félagsslit.
Við félagsslit skulu eignir samtakanna flytjast með félaginu ef um sameiningu við annað félag er að ræða, annars til velferðarmála sem stjórnin leggur til og aðalfundur samþykkir.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi samtakanna 16. Janúar 2025.